24.11.2008
Opið hús á Lundi:
Opið
hús var haldið á Lundi í október þar sem
ættingjum, vinum og velunnurum var boðið
í kaffi til að kynna sér starfsemi
Lundar. Barnakór Oddakirkju heiðraði
okkur þennan dag með fallegum söng.
Smelltu á myndirnar til að stækka þær.
30.09.2008
Félags- og
tryggingamálanefnd í heimsókn
Nú í
september kom félags- og
tryggingamálanefnd Alþingis í heimsókn á
Lund til að kynna sér starfsemi
heimilisins. Tekið var vel á móti
nefndinni og nefndarmönnum sýnd öll
aðstaða á Lundi.
Nefndin endaði á að taka lagið með
heimilisfólki og starfsfólki sem
heppnaðist mjög vel. Alltaf ánægjulegt
að fá góða gesti í heimsókn.
Smelltu á myndirnar til að stækka þær.
Réttarstemmning:
Konur úr kvenfélaginu Einingu í Holtum
komu færandi hendi í september þar sem
þær komu með svo kallaða réttarsúpu eins
og boðið er uppá í Áfangagilsréttum.
Einnig komu þær með eldri kvikmyndir úr
réttum sem vöktu ljúfar minningar hjá
íbúum.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.
Mættu alltaf
Á
starfsmannafundi sem haldinn var í vor
voru valdir starfsmenn ársins 2007 þar
sem þeir voru með 100 % mætingu.
Starfsmenn ársins 2007 eru Rós
Óskarsdóttir, Herborg Svava Jensdóttir,
Sigríður Kristmundsdóttir, Snæbjört Ýrr
Einarsdóttir, Petrína Sæmundsdóttir og
Oddný Sæmundsdóttir.
Á
starfsmannafundinn kom vinnusálfræðingur
frá Heilsuverndarstöðinni og var með
fyrirlestur um einelti á vinnustað sem
var mjög fróðlegt. Ljóst er að hópur
frábærra starfsmanna vinnur ómetanlegt
starf á Lundi og yfir 20 manns hafa
unnið á Lundi í 5 ár eða lengur.



Heilsuvika Lundar
Hing árlega
heilsuvika Lundar var haldin á vordögum
og er hún hluti af heilsueflingarstefnu
Lundar. Í heilsuviku var lögð áhersla á
hollt mataræði, hreyfingu og lífsstíl.
Mæld voru lífsmörk hjá íbúum og
starfsfólki, farið var í gönguferðir,
allir fengu að smakka á nýkreistu
hveitigrasi sem á að vera allra meina
bót. Í lokin fór starfsfólk Lundar í
heilsulindina Bláa Lónið.
Smellið á myndirnar
til að stækka þær
1. júní 2008
Heimsókn 1.
bekkjar
Í vikunni fyrir páska komu nemendur í
1. bekk Grunnskólans á Hellu í heimsókn
á Lund. Þau lásu og sungu fyrir íbúa og
máluðu egg með aðstoð íbúanna.
Það gerir mikið fyrir alla á Lundi
þegar börn koma í heimsókn og vonandi
verður meira um svona skemmtilegar
heimsóknir á næstunni.




Fyrirmyndar
fyrirtæki
Hjúkrunar og
dvalarheimilið Lundur fékk viðurkenningu
Vinnueftirlits ríkisins sem fyrirmyndar
fyrirtæki í vinnuverndarvikunni.
Viðurkenningin var afhent á Grand Hótel
í Reykjavík 23. október á ráðstefnu
Vinnueftirlitsins sem haldin var í
tilefni af norrænu vinnuverndarvikunni.
Það voru fjögur fyrirtæki sem fengu
viðurkenningu; Hjúkrunar og
dvalarheimilið Lundur, Jarðboranir,
Mjólkursamsalan og Kjötvinnsla
Sauðárkróks.
Þetta er í fyrsta
sinn sem Hjúkrunarheimili á Íslandi fær
þessa viðurkenningu. Það var nefnd
frá vinnueftirlitinu sem kom fyrir
skömmu á Lund og tók viðtöl og skoðaði
aðstæður og valdi heimilið í kjölfarið
sem fyrirmyndar fyrirtæki og á skjalinu
sem Lundur fékk stendur að
viðurkenningin er veitt fyrir
framúrskarandi vinnuverndarstarf árið
2007.
Við afhendinguna kom
fram að ástæðan fyrir því að Lundur var
valin væri sú að til þess að lyfta
þungum byrgðum væru ætíð notuð
hjálpartæki sem heimilið er vel búið að,
í tveimur herbergjum hafa verið settar
lyftibrautir í loftið, allir starfsmenn
fá fræðslu í líkamsbeitingu, unnið er
eftir sveigjanlegu vaktakerfi "Time care"
þar sem starfsfólkið velur sér sínar
sínar vaktir sjálft. Lundur hefur sett
sér heilsueflingarstefnu og hefur
heilsuviku einu sinni á ári fyrir
starfsfólk þar sem lögð er áhersla á
hollan mat og fengin fyrirlestur um
eitthvað heilsueflandi. Gefin
hefur verið út starfsmannahandbók þar
sem fjallað er m.a. um
heilsueflingarstefnu, jafnréttisstefnu,
fræðsla um líkamsbeitingu o.fl.
Það kom einnig fram að þeim þótti mjög
áhugavert að þar sem mikil mannekla væri
í umönnunarstörfum væri biðlisti eftir
að komast í vinnu á Lund og að á Lundi
væri mjög lítil starfsmannavelta.
Á móti
viðurkenningum tóku: Margrét Ýrr
Sigurgeirsdóttir hjúkrunarforstjóri,
Guðrún Jónsdóttir og Kristín
Gunnarsdóttir öryggistrúnaðarmenn. Sjá
myndir.

Lundur 30 ára
Í tilefni af 30 ára
afmæli Hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Lundar var opið hús laugardaginn 3. nóvember
þar sem rúmlega 330 gestir heimsóttu Lund.
Veitt voru þakkarskjöl
þeim félagasamtökum sem hafa styrkt Lund á
árinu, það voru: Ólafssjóður sem gaf Lundi
gjörgæsludýnu að upphæð 661.000, Kvenfélagið
Lóan gaf loftdýnu að verðmæti 180.000,
Kvenfélagið Unnur gaf 200.000, Kvenfélag
Oddakirkju gaf 150.000 og Kvenfélag
Ásahrepps gaf 50.000 og þessum fjármunum var
varið til kaupa á loftdýnum í sjúkrarúm.
Lundi bárust
afmælisgjafir frá ýmsum aðilum:
Peningaupphæð frá Ásahrepp, Kvenfélaginu
Sigurvon í Þykkvabæ og
Rangárvallaprófastdæmi, 50 tommu
plasmasjónvarp frá Kvenfélaginu Unni,
gjafabréf fyrir hátíðarmat frá Sólfugli,
gamlan sveitasíma í minningarherbergið frá
Kvenfélaginu Einingu svo eitthvað sé nefnt.
Til skemmtunar á
afmælisdaginn söng Stúlknakórinn Hekla og
barnakór Oddakirkju, Nína Morávek og Írena
Steindórsdóttir spiluðu, Öðlingarnir sungu
nokkur lög og systkinin Gísli Stefánsson og
Kristjana Stefánsdóttir sungu.
Í lokin var það kór íbúa
Lundar sem söng lag í tilefni dagsins með
frumsömdum texta. Sr. Guðbjörg Arnardóttir
var veislustjóri og stóð sig með mikilli
prýði. Gestir og íbúar voru ánægðir með
hátíðlega og skemmtilega dagskrá. Lundur
þakkar öllum sem lögðu okkur lið á
afmælisdaginn við að gera hann
ógleymanlegan. Þökkum einnig fyrir allar
gjafir og kveðjur sem bárust á
afmælisdaginn.
Smellið á
myndirnar til að stækka þær.
Starfsmenn
heiðraðir
29. október 2007
Tveir starfsmenn voru heiðraðir fyrir 10 ára
starf á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi
á starfsmannafundi í september. Það voru þær
Hlín Magnúsdóttir og Snæbjört Ýrr
Einarsdóttir. Þær fengu úr að gjöf með
miklu þakklæti fyrir vel unnin störf á
síðustu 10 árum.

Hlín og Snæbjört
Einnig fengu tveir
starfsmenn viðurkenningu fyrir bestu
mætinguna 2006 það voru Kristbjörg
Sigurjónsdóttir og Margrét Bjarnadóttir.
Innilega til hamingju!

Margrét og Kristbjörg
Hrafnistukórinn í
heimsókn
23. september 2007
Kór íbúa Hrafnistu kom á Lund 17. september s.l.
og hélt tónleika fyrir heimilisfólk
Lundar. Lögin voru einstaklega skemmtileg og
mikil gleði fylgdi þessari heimsókn. Lundur fékk
Kvikmynd að gjöf frá Hrafnistu sem er
heimildarmynd um íbúa Hrafnistu og heitir Ómur
af söng.
Gestunum var boðið í léttan
hádegisverð áður en þeir héldu áfram ferð sinni
á Kirkjuhvol.




Á myndinni eru Guðrún Jóna
Ólafsdóttir og Helga Rún Emilsdóttir.