| |
|
Stefnumótun |
|
 |
|
Holtasóley |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Stefnumótun Lundar í ýmsum
málum
Starfsmannastefna
Stefnt er að á hverjum tíma að hafa
yfir að ráða hæfu starfsfólki, sem sinnir starfi sínu af
trúmennsku og virðingu fyrir skjólstæðingum sínum og
samstarfsfólki. Við hér á Lundi teljum þjónustu við
skjólstæðinga okkar best borgið með því að þroska
liðsheildina og að starfsfólkið vinni saman sem eitt teymi
að settu markmiði, hvort heldur sem er innan hverrar deildar
eða sem ein heild.
Starfsmannastefna Lundar felur í sér að þróa samvinnu að
ákveðnu marki og á þeirri leið verður leitast við að fara
bestu leiðina, ekki endilega “mína leið eða þína”, þannig
verður stuðlað að því að allir vinni saman. Lögð er áhersla
á að mynda traust á milli starfsfólks og virðingu fyrir
viðhorfum annarra.
Starfsmannastefna Lundar felur í sér stuðning við starfsfólk
sitt með starfsmannaviðtölum. Stefnt skal að slíkum viðtölum
a.m.k. einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir. Við
ráðningu verður lögð áhersla á aðlögun starfsmanna með
sérstöku aðlögunarferli þar sem leitast verður við að stilla
saman strengi þá sem heimilið stendur fyrir og framlag hins
nýja starfsmanns til þjónustunnar.
Starfsmannastefna Lundar miðar að því að upplýsa starfsfólk
um mikilvægi þess að forðast kulnun í starfi með því að efla
fræðslu meðal þess og vísa í ábyrgð einstaklinga á eigin
líðan og lífi.
Á fjölmennum vinnustað eins og Lundi er okkar helsti auður
mannauðurinn. Lykilatriði er að starfsfólki líði vel í
starfi, fái tækifæri til að njóta sín og leggja sitt af
mörkum til að bæta þjónustuna. Stöðugleiki er því mikilvægur
og að tekið sé vel á móti nýju starfsfólki. Starfslýsingar
liggja fyrir um öll störf á Lundi, ásamt
starfsaðlögunarferli í starfsmannahandbók.
Lögð er áhersla á mikilvægi þess að starfsfólk virði
siðareglur starfstétta og trúnað gagnvart íbúum og
aðstandendum.
Jafnréttisstefna
Á Lundi er markmið að stuðla
að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og gagnkvæmri virðingu
kvenna og karla. Mikilvægt er að nýta þá auðlegð til jafns
sem felst í reynslu, viðhorfum og menntun starfsfólks af
mismunandi kyni.
• Starfsvettvangur: Í atvinnuauglýsingum Lundar skal
koma fram að starfsvettvangur henti báðum kynjum og að störf
flokkist ekki í kvenna- og karlastörf. Í öllu starfi Lundar
verður unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar
kvenna og karla í þjóðfélaginu.
• Kjaramál: Launakjör ófaglærðra starfsmanna á Lundi
eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitafélaga og
Starfsgreinasambands Íslands. Ekki eru gerðar undantekningar
frá samningi og einstaklingar af gagnstæðu kyni á sama aldri
og með sömu menntun fá greidd sömu laun í öllum tilfellum.
Einnig skulu þeir njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-,
orlofs- og veikindarétt, sbr. 14. gr. laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.
• Úthlutun verkefna, staða og tækifæra: Á Lundi verði
þess gætt við úthlutun verkefna, staða og tækifæra til að
axla ábyrgð að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli
kynferðis.
• Starfsþjálfun og endurmenntun starfmanna af báðum
kynjum skal vera sú sama og öllum gefinn jafn réttur til að
sækja námskeið og fyrirlestra til að auka hæfni í sarfi.
• Kynferðisleg áreitni: Samkvæmt 17. grein laga um
jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla nr.96/2000 þurfa:
Atvinnurekendur og yfirmenn stofnana að gera sérstakar
ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og
skjólstæðingar verði fyrir kynferðislegri áreitni á
vinnustað. Skilgreining á kynferðislegri áreitni er samkvæmt
lögunum: Hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk
þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu
þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram
þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé
óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg,
orðbundin eða táknræn. Yfirmenn Lundar bera ábyrgð á því að
starfsmenn þekki starfsmannastefnu stofnunarinnar og fylgi
henni. Einnig munu yfirmenn Lundar bregðast við ef
starfsmenn fylgja ekki stefnunni.
• Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
(fjölskyldustefna): Leitast er við að gera starfsfólki
kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart
fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða
annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.
Lundur hefur það markmið að efla fjölskyldur í
nútímasamfélagi sem er liður í því að auka ánægju
starfsmanna. Ánægt starfsfólk skilar betri starfsanda og
árangursríkara starfi.
Lundur leitast við að jafnvægi ríki milli fjölskydulífs og
atvinnu með því að gefa starfsmönnum kost á sveigjanlegum
vinnutíma eða annarri hagræðingu á vinnutíma þar sem því
verður við komið.
-
Lundur býður fjölskyldum starfsfólks til matar á
sérstökum dögum, s.s. skötuveislu á Þorláksmessu,
þorramat, aðfangadag og gamlárskvöld og eru slíkar
uppákomur auglýstar sérstaklega. Lundur leitast við að
taka tillit til breytinga á persónulegum högum
starfsfólks.
-
Starfsfólki Lundar er heimilt að taka með sér börn sín í
vinnuna þegar sérstaklega stendur á og í samráði við
yfirmann sinn, svo fremi sem það hafi ekki truflandi
áhrif á þjónustu við íbúa.
-
Lundur styður við fjölskylduvænar skemmtanir á vegum
starfsmannafélagsins.
Heilsueflingarstefna
Markmið Lundar er að stuðla að
heilsueflingu starfsmanna sinna. Reynslan hefur sýnt okkur
að þeir sem stunda heilsueflingu af einhverju tagi líður
betur bæði andlega og líkamlega og eiga því auðveldara með
að takast á við hin ýmsu störf. Leitast er við að skapa
starfsfólki umhverfi og aðstæður sem gera fólki kleift að
auka hreysti og efla vitund og vilja til að viðhalda
heilbrigði.
-
Lundur stendur reglulega fyrir fræðslu um
vinnustellingar og aðgerðir til að efla heilsu. Hönnun
hjúkrunardeildar og val á tækjabúnaði tekur mið af
vinnuverndarsjónarmiðum og til að fyrirbyggja
álagseinkenni og stoðkerfisvandamál.
-
Starfsmenn geta reglulega fengið mældan blóðþrýsting og
blóðsykur ásamt öðrum mælingum sem til falla. Stefnt er
að því á vormánuðum hvers árs að tileinka einn mánuð
heilsueflingu og auglýsa þá ýmis konar
heilsufarsmælingar ásamt fræðslu sem styður við fólk í
krefjandi starfi.
-
Lundur býður starfsfólki sínu upp á bólusetningar gegn
flensu á haustin.
-
Starfsmannastefna Lundar styður virka þátttöku
starfsfólks í heilsueflingu og er því boðið upp á að
nýta sér tæki til líkamsræktar í sal sjúkraþjálfunar í
því skyni.
-
Leitast er við að hvetja starfandi gönguhópa.
|