| Húsnæði |
|
Lundur er á tveimur hæðum. Híbýli heimilismanna, matsalur og eldhús eru á fyrstu hæð,
stoðdeildir, hárgreiðslustofa og kapella á jarðhæð.
Híbýli heimilismanna skiptast á tvær einingar eða deildir. Á annarri deildinni eru sextán einstaklingsherbergi (20 og 15 ferm.) með sérsnyrtingu hvert og eitt tvíbýli (20 ferm.) með sérsnyrtingu. Á þessari einingu búa að jafnaði nítján einstaklingar. Þeir hafa allir aðgang að myndarlegu bókasafni, sameiginlegri setustofu með sjónvarpi, myndbandstæki og hljómflutningstækjum auk dagblaða. Þar er einnig alltaf kaffi, te, vatn og djús á borðum.
Hin deildin er eingöngu með tvíbýli (24 ferm.) nema þar er eitt einbýli sem ætlað er mikið veikum einstaklingum sem þurfa tímabundið meiri hjúkrun og aðhlynningu. Á þessari deild búa að jafnaði tólf einstaklingar. Þessari einingu er ætlað að hjúkra t.d. einstaklingum með sjúkdóma af völdum heilabilunar. Á deildinni er borðstofa og þar borða þeir sem mesta hjálp þurfa. Reynt er að hafa andrúmsloftið rólegt og yfirvegað svo einstaklingarnir verði fyrir sem minnstri truflun. Hægt er að hafa þessa deild "lokaða" af öryggisástæðum þegar það á við. Ávallt er stefnt að því að hafa heimilishald sem eðlilegast. Eldhús Stórt og fullkomið eldhús er á Lundi. Lögð er áhersla á fjölbreytt og næringarríkt fæði, ávallt er tekið mið af ástandi heimilisfólks þegar það á við, t.d. sérfæði fyrir sykursjúka, nýrnabilaða, fólk með kyngingarörðugleika ofl. Flestir borða saman í sameiginlegum matsal, rúmgóðum og björtum. Í matsalnum fara fram allar meiri háttar samkomur, veislur, þorrablót og þess háttar.
Sjúkraþjálfun Á jarðhæð Lundar er fullkomin sjúkraþjálfunaraðstaða til húsa, með öllum helstu tækjum og æfingabekk, auk aðstöðu fyrir bakstra og nudd. Sjúkraþjálfunin er rekin af Mariu Buendia, sjúkraþjálfara og með henni starfar aðstoðarmaður í fullu starfi. Sjúkraþjálfunin þjónar heimilisfólki Lundar svo og öðrum íbúum Rangárvallasýslu.
Iðjustofa Stór og björt iðjustofa er á jarðhæðinni þar sem aðstaða er fyrir hvers kyns iðju.
Hár- og fótsnyrting
Kapella Kapellan var vígð 8. desember 2002 að viðstöddu fjölmenni.
Skrifstofa Yfirumsjón með bókhaldi, launamálum, starfsmannahaldi, sjúklingabókhaldi ofl.
Húsvörður Hann sér um viðhald á öllu sem við kemur eignum og tækjum hússins ásamt lóð. Einnig er hann bílstjóri heimilisins, en þar undir fellur akstur dagvistarfólks ofl.
Reykingar Reykingar eru ekki leyfðar á Lundi. Starfsfólk og gestir mega ekki reykja á heimilinu né á lóð þess. Sérstakt reykherbergi er til staðar í kjallara hússins fyrir heimilisfólk sem reykir. Af öryggisástæðum er ekki hægt að leyfa reykingar inni á herbergjum heimilisfólks. |
Joomla Template Download From Joomlatp.com Designed by: Free Joomla 1.5 Theme, ftp account. Valid XHTML and CSS.