| Starfsmannastefna |
|
Stefnt er að á hverjum tíma að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki, sem sinnir starfi sínu af trúmennsku og virðingu fyrir skjólstæðingum sínum og samstarfsfólki.
Við hér á Lundi teljum þjónustu við skjólstæðinga okkar best borgið með því að þroska liðsheildina og að starfsfólkið vinni saman sem eitt teymi að settu markmiði, hvort heldur sem er innan hverrar deildar eða sem ein stofnun. Starfsmannastefna Lundar felur í sér að þróa samvinnu að ákveðnu marki og á þeirri leið verður leitast við að fara bestu leiðina, ekki endilega “mína leið eða þína”, þannig verður leitast við að allir vinni saman. Starfsmannastefna Lundar felur í sér stuðning við starfsfólk sitt með starfsmannaviðtölum. Stefnt skal að slíkum viðtölum a.m.k. einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir. Starfslýsingar skulu liggja frammi fyrir öll störf. Unnið er að starfsaðlögunarferli fyrir nýja starfsmenn.
Starfsmannastefna Lundar leitast við að upplýsa starfsfólk um mikilvægi þess að forðast kulnun í starfi með því að efla fræðslu meðal starfsfólks og vísa í ábyrgð einstaklinga á eigin líðan og lífi. |
Joomla Template Download From Joomlatp.com Designed by: Free Joomla 1.5 Theme, ftp account. Valid XHTML and CSS.