| Hjúkrun |
|
Markmið hjúkrunar eru að:
• Veita hjúkrun sniðna að þörfum hvers og eins • Styðja einstaklinginn til sjálfshjálpar • Tryggja öryggi og vellíðan heimilisfólks • Efla og viðhalda lífsgæðum heimilisfólks • Viðhalda og treysta samband við aðstandendur
Hjúkrun heimilisfólks á Lundi fer fram í svokallaðri teymisvinnu og að henni koma hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og starfsfólk í aðhlynningu.
Hjúkrunarfræðingur setur fram einstaklingshæfða hjúkrunaráætlun sérsniðna að þörfum hvers og eins. Einnig hefur hver og einn einstaklingur sitt dagskipulag lagað að þörfum hans og óskum.
Á Lundi er lögð megináhersla á að einstaklingurinn sem og heimilið sé í góðum tengslum við aðstandendur. Mikilvægt er að líta ekki á Lund sem lokaða stofnun sem enginn fer út af þegar inn er komið. Að taka sína nánustu í bíltúr, búðarferðir eða heimsóknir á tyllidögum eða öðrum dögum er nokkuð sem gefur fólki mikið, bæði einstaklingnum og aðstandendum hans.
Hjúkrunarfræðingar aðstoða fjölskyldur að koma upp tengslaneti, en það er net milli fjölskyldu, einstaklingsins og heimilisins, ef þess er óskað. Heimilið leitast við á hverjum tíma að eiga öll helstu hjálpartæki sem völ er á til að létta aðhlynningu og auka öryggi einstaklingsins. |
Joomla Template Download From Joomlatp.com Designed by: Free Joomla 1.5 Theme, ftp account. Valid XHTML and CSS.