Sunday 20th of May 2012
| Læknisþjónusta |
|
Lundur hefur samið um læknisþjónunustu við lækna heilsugæslustöðvar Rangárþings.
Læknarnir bera faglega ábyrgð á læknisþjónustu við heimilismenn.
Læknarnir hafa fasta viðverutíma, á öðrum tímum koma þeir og líta til íbúa eftir þörfum og í samráði við hjúkrunarfræðinga. Ef upp koma bráð veikindi koma læknar ávallt í vitjun, meta ástand og bregðast við. Ef heimilisfólk þarf á sérfræðiþjónustu að halda sér heimilið um að panta tíma og í flestum tilvikum sér heimilið einnig um að koma fólki á milli.
Þó er ekki óalgengt að aðstandendur sjái sjálfir um þennan þátt með meiri þátttöku í umönnun sinna nánustu sem er mjög jákvætt.
Tannlæknisþjónustu sækjum við að mestu til tannlæknis sem staðsettur er á Hellu. |
Joomla Template Download From Joomlatp.com Designed by: Free Joomla 1.5 Theme, ftp account. Valid XHTML and CSS.